Að senda fjárkröfu á Lýsingu í lögfræðiinnheimtu
Já þú lest þetta rétt, ég er búinn að senda fjárkröfu á Lýsingu í lögfræðiinnheimtu og ég er viss um að ansi margir aðrir geti gert slíkt hið sama.
Ég var með gengistryggt bílalán hjá Lýsingu. Þegar afborganir á því voru í hæstum hæðum vegna gengistryggingarinnar þá gerði ég eins og margir aðrir og gjalddagabreytti láninu. Þetta var valmöguleiki sem Lýsing (og að ég held fleiri fjármögnunarfyrirtæki) kynntu sem valkost gagnvart sínum viðskiptavinum. Þetta gerði greiðslubyrðina bærilega og forðaði mér (og sjálfsagt mörgum öðrum) frá því að þurfa að selja bílinn á verði sem var langt undir höfuðstól lánsins. Lánið hefur að sjálfsögðu alltaf verið í skilum eins og allar aðrar fjárskuldbindingar sem ég hef verið með í gegnum tíðina.
Þessa gjalddagabreytingu gerði ég nokkrum sinnum og greiddi nokkur þúsund krónur fyrir í hvert skipti. Samtals greiddi ég 20.000 krónur þangað til að Hæstiréttur dæmdi gengistryggingu lána ólöglega. Ég tel mig vita að fjölmargir aðrir viðskiptavinir fjármögnunarfyrirtækjana hafi gert slíkt hið sama.
Það er prinsippmál að Lýsing endurgreiði þessa fjármuni enda hefðu þeir aldrei verið greiddir til fyrirtækisins nema vegna ákvæðis í samningi sem reyndist ólöglegt.
Lýsing vill að sjálfsögðu ekki fallast á það. Þar er talað um að ég hafi beðið um þessa breytingu og / eða að þetta sé kostnaður við afgreiðslu breytingarinnar. Ef síðarnefnda atriðið er rétt þá væri ég alveg til í að vera á tímakaupinu sem starfsmenn Lýsingar eru á en það tók ca 10 mínútur að gera breytinguna og renna debetkortinu mínu í gegnum posann.
Raunar bað starfsmaður Lýsingar um að ég fengi álit Umboðsmanns skuldara í málinu en ég hef nú beðið frá því í apríl sl. að fá einhver svör þaðan.
Ég hef nýverið heyrt ansi ljóta sögu af því hvernig Lýsing hefur komið fram við vinafólk mitt og því finnst mér rétt að deila þessari reynslu minni af viðskiptum mínum við þetta ágæta fyrirtæki. Ég hvet þá sem gjalddagabreyttu sínum lánum að krefja Lýsingu einnig um endurgreiðslu. Það gengur einfaldlega ekki að fyrirtæki komi fram með þessum hætti.
Og hvað ætla ég að gera við peninginn þegar ég fæ kröfuna loksins greidda hjá vinum mínum hjá Lýsingu? Jú, ég ætla að gefa hann með vöxtum og vaxtavöxtum til Innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs Kirkjunnar. Reikningsnúmerið þar er 0334 26 27 og kennitalan er 450670 0499.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim