Icesave og hrakningar á Langjökli
Það er eitthvað svo íslenskt við það þegar skoska konan og sonur hennar týndust á Langjökli um daginn.
Ferðaþjónustufyrirtækið ákveður að fara með stóran hóp erlendra ferðamanna upp á næst stærsta jökul landsins þrátt fyrir slæma veðurspá. Ferðamennirnir eru óvanir jöklaferðum og hafa margir hverjir aldrei notað snjósleða áður. Samt sem áður er þeim hiklaust beint af stað upp á jökul þar sem skyggnið er bersýnilega að versna. Eina tilsögnin sem ferðaþjónustufyrirtækið veitir ferðamönnunum er hvernig á að kveikja og slökkva á vélsleðunum og hvernig á að stýra þeim.
Síðan er lagt í hann.
Í slæmu skyggni lendir svo konan í því að sleðinn hennar fer að bila og nær með naumindum athygli leiðsögumanns sem í snarheitum kemur sleðanum í gang. Leiðsögumaðurinn rýkur í burtu og þó að konan missi af hópnum þegar hún á í erfiðleikum með að stýra sleðanum sínum við erfiðar aðstæður þá einfaldlega steingleymist hún. Það er eiginmaður konunnar sem áttar sig á því að konu hans og son vantar þegar menn eru komnir á leiðarenda. Ekki var gengið í það að athuga að allir sem fóru upp á jökul í slæmu skyggni hefðu komið niður aftur.
Eins gott að konan var ekki á eigin vegum í þessari ferð. Þá væri hún sjálfsagt enn uppi á íshettunni.
Það er aðeins rétt hegðun konunnar og sonar hennar við hættulegar aðstæður og vaskir björgunarmenn sem bjarga henni og syni hennar frá því að verða úti. Tvö mannslíf velta á því að menn fatti að halda kyrru fyrir og gera sér skýli.
þeir sem bera ábyrgð í málinu og ætla sér að hagnast á erlendum ferðamönnum eru stikkfrí af því að engar reglur gilda um jöklaferðir sem þessar. Reyndar segir forsvarsmaður björgunarsveitana að reglur séu frekar til óþurftar við aðstæður eins og þessar. Betra sé að menn ræði saman óformlega um öryggismál og hann haldi raunar að það sé gert svona öðru hvoru. Það á að rannsaka málið en líklega sleppa þeir sem bera ábyrgð og almenningur borgar á endanum kostnaðinn af björgunarleiðangrinum.
Er ekki eitthvað sér-íslenskt við þetta allt saman?
Vorum við ekki að lenda í svipuðu máli hérna um daginn sem minnir eitthvað aðeins á þetta.
Já, alveg rétt, það var Icesave eða eitthvað svoleiðis ...

2 Comments:
The amazing part of that story was the way the mom did everything she could to keep her son warm and safe.
Indeed.
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim