19 febrúar 2007

Hægri og vinstri

Ég þreytist seint á því að pirra mig á því þegar talað er um "hægri" og "vinstri" í stjórnmálaumræðu. Þessi hugtök eru merkingarlaus þar sem þau gera ráð fyrir einum kvarða. En mig grunar að mönnum finnist þægilegt að nota svona merkimiða enda sparar þeim það hugsun og gefur þeim færi á því að tala mikið um pólítik með frasakenndum hætti án þess að tengja sig við veruleikann.

Dæmi var um þetta í Speglinum í kvöld þegar reynt var að halda því fram að "hægrimenn" væru frekar "athafnastjórnmálamenn" sem var talið neikvætt en "vinstrimenn" væru umræðustjórnmálamenn og því menn skynseminnar. Var "hægrimaðurinn" Hitler þá athafnastjórnmálamaður á meðan "vinstrimaðurinn" Stalín var það ekki? Maður hefði nú haldið að menn hefðu nú náð utan um þessa hluti í BA náminu sínu en það virðist nú ekki hafa tekist.

Gengur betur næst kannski. En það er góð skemmtun að fara inn á Political Compass og kíkja á hvar maður stendur. Því ofar sem maður er á kvarðanum hefur maður meiri hug á forræði ríkisins í siðrænum og félagslegum málum. Kvarðinn til hægri og vinstri vísar til þess hve mikið eða lítið maður vill að efnahagslífið sé á forræði ríkisins.
'

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim