07 júní 2006

Alcoa greiðir Landsvirkjun helming af því orkuverði sem greitt er í Brasilíu

Mér rann í skap þegar mér var bent á vef Alcoa þar kemur fram að fyrirtækið greiðir Landsvirkjun helming þess orkuverðs sem það greiðir í Brasilíu. Alcoa tók fréttina út af vef sínum í dag, ef maður notar upprunalegu slóðina á fréttina þá er vísað á fréttaforsíðu á vefnum. Það er hægt að sjá greinina á archive á Google og sjá upplýsingar um orkuverðið ef maður notar leitarfrasa á vef Alcoa.

Orkuverð fer hækkandi en íslensk stjórnvöld setja land okkar og orku á útsölu. Nú hefur kaupandi upplýst um orkuverðið og því eðlilegt að ríkisfyrirtækið Landsvirkjun upplýsi hvað fæst fyrir að reisa og reka Kárahnhjúkavirkjun í ljósi þess hve umdeild og víðtæk framkvæmdin er. Ef það þarf að leiðrétta rangfærslur þá er bara málið að gera það. Nóg er komið af þessari vitleysu.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim