10 desember 2005

Skröggur sér að sér

Við fórum á uppfærslu Hugleiks á jólaævintýri Dickens. Ágætis sýning svo sem en hún var eilítið langdregin. Mér finnst óþarfi að vera með endalausa dónabrandara á sýningu sem er sérstaklega auglýst sem fjölskyldusýning. Mér datt reyndar í hug að þeir hafi verið settir í sýninguna sem gamalkunnugt úrræði hinna hugmyndasnauðu enda ófyndnir.

Ég er líka litaður af stórfínni útgáfu Prúðuleikarana af þessari skemmtilegu sögu Dickens en það er líklega skásta mynd sem hinn stórlega ofmetni Michael Cane hefur leikið í.

Boðskapur sögunar hittir þó alltaf í mark og minnti leiksýningin mig á að maður á að vera góður við þá sem manni þykir vænst um á jólunum. Ég er því að velta því fyrir mér að kaupa mér eftirfarandi fyrir þessi jól:

- 750 gr. af Nóa konfekti
- Nýju bókina hans Arnaldar
- Bókina um Hannes Hafstein
- Bókina um Jörund hundadagakonung eftir Ragnar Arnalds
- Tölvuleik, t.d. Civ IV, Rome Total War Barbarian Invasions eða Age of Empires III

En núna er best að hætta þessu blaðri og koma afkvæminu í háttinn.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim